Vefurinn er enn í þróun og því ekki allar forsendur komnar inn

Reiknaðu nettólaun, brúttólaun og skatt á Íslandi fyrir 2026

Þessi launareiknir sýnir hvernig brúttólaun skiptast í nettólaun, staðgreiðslu, persónuafslátt og lífeyrissjóði. Reiknivélin er miðuð við mánaðarlaun og byggir á opinberum staðgreiðslureglum fyrir árið 2026.

Þú getur séð áhrif persónuafsláttar, 4% lífeyrissjóðsiðgjalds og séreignarsparnaðar. Markmiðið er að gera samanburð á brúttólaunum og nettólaunum einfaldan og setja fram á myndrænan hátt fyrir launafólk á Íslandi.

Hvernig virkar þessi reiknivél?

Launareiknirinn byrjar á brúttólaunum og dregur frá lífeyrissjóðsiðgjald starfsmanns áður en stofn til staðgreiðslu er reiknaður. Persónuafsláttur er síðan dreginn frá útreiknuðum tekjuskatti.

Þetta gerir þér kleift að bera saman hvað þú færð raunverulega útborgað miðað við mismunandi mánaðarlaun, hvort þú nýtir persónuafslátt og hvort þú leggur fyrir í séreign. Reiknivélin hentar því bæði til að meta launatilboð og til að skilja betur muninn á brúttólaunum og nettólaunum á Íslandi.

Útreikningur skref fyrir skref

Reiknivélin notar opinberar staðgreiðslureglur Íslands fyrir árið 2026. Fyrst eru dregin álagningarframlög (lífeyrissjóður 4% og valkvæð séreign 0–4%) frá brúttólaunum til að finna skattstofn. Síðan er tekjuskattur reiknaður í þrepum samkvæmt þrem skattþrepum: 31,49% fyrir laun upp að 498.122 kr., 37,99% fyrir 498.123 til 1.398.450 kr., og 46,29% fyrir allt sem yfir 1.398.450 kr. Loks er persónuafsláttur (72.492 kr./mánuð) dreginn frá útreiknaðri staðgreiðslu. Nettólaun eru þá fundin með því að draga heildariðgjöld og staðgreiðslu frá brúttólaunum.

Algengar spurningar um nettólaun og skatt

Hvað er munurinn á brúttólaunum og nettólaunum?

Brúttólaun eru launin áður en staðgreiðsla og iðgjöld eru dregin frá. Nettólaun eru upphæðin sem stendur eftir eftir skatt og frádrátt, og er það sem þú færð greitt út. Yfirleitt þegar talað er um laun er verið að tala um heildarlaun (brúttólaun), því frádráttur launa getur verið mjög mismunandi eftir einstaklingum og því enganvegin forsenda fyrir samanburði á útborguðum launum frekar en heilarlaunum.

Tekur launareiknirinn mið af persónuafslætti?

Já. Þú getur kveikt og slökkt á persónuafslætti í reiknivélinni til að sjá hvernig hann hefur áhrif á staðgreiðslu og nettólaun. Einnig er hægt að sjá hvernig persónuafsláttur maka nýtist til hagsbóta ef maki er ekki útivinnandi.

Tekur reiknivélin mið af lífeyrissjóði og séreign?

Já. Reiknivélin sýnir áhrif 4% lífeyrissjóðsiðgjalds og valkvæðrar séreignar á bæði skattstofn og útborguð laun.

Er þetta opinber launareiknivél?

Nei alls ekki, þetta er sjálfstæður launareiknir til viðmiðunar sem byggir á opinberum heimildum frá Skattinum fyrir árið 2026. Í guðanna bænum ekki vaða í mannauðssviðið með upplýsingar frá þessari reiknivél.